Klukkan
Leitarbox

26.09.2006 20:56:36 / Maria

MOVED!

Þá kom (loksins) að því, ég er búin að skipta um síðu (aftur)

Tók frá hið æðislega wwww.mariakr.bloggar.is fyrir einhverjum dögum, og er hún í "vinnslu" eða þannig, eina sem komið er er LastFM playlistinn minn, ef þið hafið áhuga á því hvað ég er að hlusta á. Vonandi verða svo einhverjar myndir af mér frá France sem verða notanlegar í eitt stykki banner. Hef ekki haft tíma í neitt meira stúss, það er of mikið að gera í skólanum (af hverju er ég þá að blogga núna, þegar það er stærðfræðipróf á morgun?) Æ, ég hef aldrei verið neitt frábær í að læra undir þau hvort eð er, annaðhvort er þetta einfaldlega komið inn í hausinn á mér eða ekki hef ég komist að. End of random ramble..

Minni alla svo á www.5a.bloggar.is , NFS5A eru i þvílíku stuði, svo er ég bara einna virkust þarna vil ég meina með fleygurnar mínar. Býst við því að strákarnir muni setja eitthvað inn á meðan á Grenoble-Paris dvölini stendur.
Peace out!
-Maria

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 23:57:37 / Maria

The story thusfar...

YES, Word komið í lag, og hér er ein eldheit færsla, bara fyrir ykkur, dyggu aðdáendur mínir. Hér sit ég, nýkomin af Busakvöldi Verzló, sem var mikið gaman, mikið grín, og hef ekkert að gera þangað til RockStar:Supernova hefst, nema kannski horfa á raunveruleikaþáttinn á netinu, en vildi fyrst koma þessari færslu inn. 

Ágúst segiði, hann kom og fór, án blogs frá mér. En það þýðir ekki að ég hafi setið á rassgatinu allan tímann, neinei. Þetta gerðist:

  • Ég hætti í vinnunni! Fannst helst leiðinlegt að yfirgefa stelpurnar, en þær voru allar að hætta bráðum til að fara til útlanda (eða þá í útlöndum þegar ég hætti) þannig að..Ég hætti aðeins fyrr en áætlað var vegna þess að mér bauðst að fara í aðra veiðiferð, að þessu sinni í Norðurá. Og ekki sé ég eftir þeirri ferð, eitt stykki flugulax veiddist, minn fyrsti á flugu hvorki meira né minna. Þannig að afli sumarsins er samtals ein bleikja og einn lax, sem ég segi að sé bara ágætt, miðað við að ég fór bara í tvær ferðir í sumar. Úr því verður bætt næsta sumar.
  • Svo átti ég afmæli, varð 18 ára hvorki meira né minna. Hef svosem ekki neitt meira að segja um það, þetta var ágætt, ekkert spes gert eða neitt þannig, bara þessi hefðbundni fjölskyldubrunch, sem var fínn.
  • Svo tók við ein letivika, og svo var skólinn bara byrjaður aftur! Andstætt við seinasta sumar leið þetta ALLT of hratt, þökk sé rigningunni sem var í nánast allt sumar, og vinnunni endalausu. En með skólanum komu skemmtilegar fréttir, ég er sumsé að fara til FRAKKLANDS í 2 vikur með bekknum mínum frábæra, 5-A, í október. Þar munum við gista í 9 daga hjá frönskum krökkum í Grenoble og nágreni, sem koma svo til okkar í febrúar. Eftir þá 9 daga munum við eyða 3 dögum saman í PARÍS! Ég er svo spennt, þetta verður gaman, eitt stórt PARTEY!

Ég hef yfir engu að kvarta um skólann í ár, ég vildi að við yrðum ekki á 4. hæð lengur, og það rættist, erum á 3. hæð núna, sem er svo miklu þægilegra. Svo vildi ég að okkur yrði hlíft við ákveðnum kennara sem ég læt vera að nafngreina hér *hóst*bloggaðinokkrumsinnumumþennankennaraífyrra*hóst* (reynið að lesa þetta eins hratt og þið getið) og í staðinn kom kennari sem er SNILLINGUR í alla staði. Þannig að ég er one happy person.

Eða ekki alveg rosalega mikið, því Mummi og Ása eru farin aftur til Köben :( Sakna þeirra mjög strax, það er svo skrítið að hafa ekki stóra bróður heima lengur aftur..og svo flytja þau bara eitthvert annað þegar þau koma heim í vor, þannig að hann flytur officially út :(:( Sést það vel að ég þoli ekki svona stórar breytingar?

OK, sumar breytingar er ég MJÖG sátt með reyndar, eins og t.d. íbúðina mína nýju æðislegu sem er í fullum gangi að “byggja” eða gera klára, whatever. Úff, hlakka svo til! Um leið og ég er komin með nokkuð pottþétta dagsetningu á verklok mun ég byrja ða telja niður. 

That’s all folks!

P.S. Prison Break er byrjað aftur!


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 03:02:08 / Maria

Stutt innskot

Ég ætla að blogga, gerist vonandi á morgun, þegar ég ætlaði að fara að skrifa eitthvað skemmtilegt í Word var það bara með móral við mig, vill ekki opnast...

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 02:40:33 / Maria

Tadarara...

Einmitt gott fólk, ég hef ákveðið að skella inn einni eiturhressi fræslu handa ykkur. Ég er ekkert að standa mig í þessu bloggi frekar en fyrri daginn, málið er bara að ég hef ekki, eða ok, gef mér aldrei tíma til að blogga. Núna hugsa öruglega einhverjir: Þú segist ekki hafa tíma, en ert samt að blogga kl. Rúmlega 3 um nóttina. Einfallt mál, núna er komin dásamleg HELGI. 10 dagar eftir í vinnunni, en ef veðrið heldur áfram á þessari stefnu gæti ég staldrað við 2 daga í viðbót, líklegast ekki samt, but you never know.

 

Lífið mitt í sumar hefur ekki verið áhugavert, frekar en fyrri daginn. Hvað hef ég verið að gera? Vinna. Og loksins þegar það gerist eitthvað meira hef ég ekki tíma til að blogga um það, það er svo mikið að gera. En hérna eru atburðir seinasta hálfa mánuðsins í hnotskurn:

 

  • Ég fór að veiða með Mumma, Baldvin og afa 9.-11. júlí, í silungasvæði Miðfjarðarár. En áður en lagt var af stað þangað verð ég að nefna að ég fór til Evu í afmælisbrunch. Við gæddum okkur á dýrindis bakarísfæði úr Korninu, þar sem Eva vinnur einmitt. Fínt að slappa aðeins af þar áður en skundað var af stað í veiðina. Ferðin var fínasta skemmtun, stoppuðum á Laugabakka til að horfa á úrslitaleik HM. Þar var saman kominn ágætur hópur af fólki, þeirra á meðal ítalskir ferðamenn, sem höfðu verið að veiða, en ákváðu að fara þangað og horfa á leikinn, ekki oft sem Ítalía keppir um (og vinnur) heimsmeistarakeppnina. Það var mjög gaman að fylgjast með þeim fagna þegar Ítalía skoraði, en þegar Zidane skoraði úr vítinu skömmu áður lét ég mér nægja að fagna hljóðlega, flestir þarna virtust vera á bandi Ítalíu, nema ég og Baldvin, sem kom inn í leikinn síðar. Svosem ágætis leikur, ég hélt með Frökkunum eins og áður sagði, allt þangað til 10 mínútum fyrir lok leiksins, þegar Zidane skallaði Materazzi í bringuna. Sama hvað maðurinn sagði, þá hlítur það að enda knattspyrnuferilinn sem hetja Frakka, mögulega heimsmeistari og að vera tekinn í tölu goðsagna knattspyrnuheimsins að slá því við að vera rekinn út af með rautt spjald fyrir eitthvað svona. Nenni ekki að eyða meira púðri í þetta atvik.

Svo var skundað af stað, komum í húsið, sem er ekkert annað en kofi, ég hafði verið að búast við einhverju aðeins betra. Næstu tvo morgna var sko vaknað snemma, seinni daginn var ég svo örmagna að ég tók mér léttan blund í aftursætinu frá 7-10, ég var alveg hundónýt af svefnleysi. Veiddi þó eina bleikju, sem er gott og gaman.

 



  • Næsti viðburður var á laugardaginn, þegar farið var upp í Hvalfjörðinn okkar góða, í brúðkaup Lofts Bjarna og Guðbjargar. Veðrið var ekki alveg það besta, en maður tók því nú, fötin höfðu verið keypt með sólskynsveður í huga, annað kom ekki til greina, miður júlí, það á ekki að rigna svona mikið á einu sumri. Þar var mikið hlegið, og allir skemmtu sér mjög vel.
  • Það hefur heldurbetur ræst úr veðrinu, ég hef verið seinustu tvo daga í vinnunni, ásamt hópum þeirra Eydísar og Ingibjargar, úti í Viðey, að raka saman grasi og henda svo hrúunum aftan á vagn dreginn af traktor, með heyhvíslum. Tíminn hefur svoleiðis flogið hjá í þessu dásamlega veðri, og þegar heim var komið fór mín beint aftur í sólbað. Afraksturinn er falleg brúnka, en þó nokkrir rauðir blettir inn á milli.

Ég verð að láta þetta duga í bili, vonandi svalar þetta blogþörfinni hjá ykkur, kæru lesendur.

-Kv. María sólbrúna.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 21:51:31 / Maria

Alltaf stuð í arfanum..

Einmitt, dagurinn í dag var fín, þrátt fyrir lélegt veður, þakka ég stelpunum fyrir alveg hreint frábærar umræður þar sem við sátum í arfanum og nenntum þessu svo ekki. Svo var Axel yfirmaður (þessi óþolandi sem ég talaði um hér að neðan) veikur, þannig að auðvitað var tækifærið notað og farið aðeins fyrr heim (uss..don't tell anyone ;))

En já, við létum tíman líða eftir seinna kaffi með því að fylgjast með Heiðu fá start frá Davíð sínum, en bíllinn hafði gefist upp og orðið rafmagnslaus fyrir kaffi. Rosa skemmtun það. Svo fór hér um bil heill klukkutími í það að rökræða hvort annað orð yfir viðarbút (sp-ta) væri skrifað með í eða ý (fengum ekki niðurstöðu í það mál fyrr en heim var komið) Hvað segið þið, örfáu sálir sem lesa þessa síðu, hvernig er svo þetta orð skrifað? Bannað að svindla, það má ekki einu sinni skrifa orðið niður til að athuga, endilega skrifa í komment.

Ég sjálf var gallhörð á fyrra möguleikanum lengst af, en stelpurnar náðu að láta mig efast um þetta, sem er erfiðara en það virðist. Hringt var í foreldra og kærasta, og komu svörin nokkuð jafnt út á báða bóga. Eftir þessar mjög svo hressilegu umræður snérist umræðan að..hvað var það aftur, voru það ekki bara bílar? Ég man það ekki, eitthvað álíka áhugavert og fyrri umræða. Alltaf rosa fjör í arfanum...

Læt þetta duga í bili, endilega láta heyra í sér

-Maria


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 19:49:09 / Maria

Vinna, vinna, vinna..

Hvaða kvart er þetta, Baldvin? Núna er það vinnan sem tekur allan minn tíma..7:30-17:00..algert morð, sérstaklega í þessu veðri sem hefur verið síðan ég byrjaði.(í rauninni alveg síðan vinkonur mínar byrjuðu, nokkrum vikum á undan mér) Svo er yfirmaðurinn algjört fífl, fyrst styttir hann kaffitímann okkar, en segir samt að við séum duglegur hópur (ekki alveg samræmi á milli þess að hrósa okkur, en í raun refsa okkur fyrir það) og svo lætur hann okkur þrífa húsið sem við borðum nestið okkar í, sem væri í lagi ef það hefði staðið einhversstaðar í þessum blessaða ráðningarsamningi sem hann er með gjörsamlega á heilanum, en að láta fólk sem notar ekki einu sinni húsið sem nestisstað þrífa það, það er einum of..

En ég ætlaði ekki að blogga um það hvað yfirmaðurinn er mikill asni..en þetta próf vill ekki sjást..


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 21:19:43 / Maria

Skrítin stefnumál og Eurovision

Tvöfallt !”#$%&/(%&/&/)(/&#$%&/. Núna er ég POTTÞÉTT hætt á þessu blog.central, dropinn sem fyllti mælinn er að ég var komin með þetta rosalega blogg, en auðvitað var ég búin að vera of lengi að skrifa það, svo það klikkaði! Ætla að reyna að skrifa þetta aftur..

 

Ég ætla að fylgja ákveðni tísku sem ég hef tekið eftir í blogginu hjá Boða, Steinari og Sigga bekkjarbræðrum mínum, og tala örlítið um stjórnmál. Þetta verður þó ekkert merkilegt. Þegar ég var að setja inn niðurstöðurnar úr þessu prófi sem ég tók í gær sé ég eina auglýsinguna sem birtist hérna fyrir ofan, kosningarauglýsing Hjálmars Þ. Hannessonar. Ég veit ekki hvort það var vegna þess að klukkan var orðin 3 eða ekki, en ég skellti hressilega uppúr þegar ég sá þessa auglýsingu. Getur einhver útskýrt fyrir mér hvað maðurinn á við með þessum “stefnumálum“sínum? Nenni ekki að eyða tíma í að lesa mér til um það..

 

1. Hann vill vinna þessar kosningar. Allir sem eru í framboði vilja auðvitað vinna, ekkert “newsflash” þar.

2. Hefur þú kynnt þér stefnumál Hjálmars? Sjá hér að ofan svaið við því.

3. Ísbúð sem snýst? What the heck er allt sem ég get sagt við þessu.

4. Bílastæði og álver, ekkert hægt að setja út á það, tvö kosningarmál sem vert er að hafa skoðun á. En að FÆRA KRINGLUNA? Ég DRAPST úr hlátri þegar ég las þetta. Getur einhver útskýrt fyrir mér AF HVERJU hann vill færa Kringluna? Allavegana set ég stórt NEI við það!

 

Svo er það Eurovision. Jei Finland! Þetta var fínt kvöld, fyrir utan það þegar Boði var alltaf að öskra “We are the winners!” (Litháenska lagið..ömurlegt) Fór í þetta stórskemmtilega grill til Hákons ásamt mörgum úr bekknum. Að ógleymdu snilldarkvöldi í Grindavík heima hjá Óskari kvöldið áður, pottur og læti. En það var ekki ástæðan fyrir því að ég ætla að skrifa smá um Eurovison, heldur er það svo í pottinn búið að núna get ég ekki losnað við lögin úr hausnum. Það ætti að banna fólki að geta nálgast þessi lög eftir keppnina, ég er löngu búin að fá ógeð á þeim, en samt vil ég ekki slökkva. Þessi lög fara EKKI á ipodinn minn, það er nokkuð víst...


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 03:06:42 / Maria

Smá innskot

!"#$%&/(()=)(/&%$!"#$ staðfestingakóðar sem eru komnir hingað inn, önnur ástæða fyrir því að allir ættu að hætta með þessar síður, það er ekki hægt að commenta ef maður er að nota Firefox, og ekkert er meira pirrandi en að þurfa að fara yfir í IE alltaf til að commenta, bæði hjá mér sjálfri og hjá öðrum.

Tók þetta próf þegar ég sá það á síðunni hans Mumma, og kom bara vel út.

Your results:
You are Spider-Man
Spider-Man
90%
Green Lantern
70%
Supergirl
70%
Superman
70%
Robin
60%
Wonder Woman
60%
The Flash
55%
Hulk
50%
Catwoman
45%
Iron Man
35%
Batman
30%
You are intelligent, witty,
a bit geeky and have great
power and responsibility.
Click here to take the "Which Superhero are you?" quiz...

Until next time..

P.S. PRÓFIN ERU BÚIN :D:D:D:D:D Dálítið sein með fréttirnar, kláruðust fyrir viku, en ég fæ einkunirnar á miðvikudaginn (tæknilega á morgun :D)

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 16:15:14 / Maria

Bæ bæ Blog.central?

Já, einmitt, það gæti vel gerst í byrjun sumars. Sjáum til..Ef einhver hefur góða/slæma reynslu af öðru kerfi væri fínt ef þið létuð mig vita fyrirfram.

Ég sit hérna og á að vera að læra undir stjórnmálafræðipróf, sem ég er búin að vera að gera, en vildi skella inn einni blogfærslu mér til gamans áður en é held áfram. Ég ætla mér að blogga um páskafrísferðina til Barcelona/Madrid eftir próflok, set etv inn eitt stórt ferðablogg um tvær ferðir þegar ég kem heim frá Köben, en þangað er ég einmitt að fara eftir prófin. Get ekki beðið eftir því.

Flestar sjónvarpsseríur eru að renna sitt skeið um þetta leiti, af þeim tveimur sem ég horfi hvað stífast á, One Tree Hill og Prison Break er önnur nú þegar búin, etv. fyrir fullt og allt. Þetta var að spennandi endir (fer ekkert nánar út í það hér) að næstu tvær vikur verða mjög skrýtnar, að vita ekki hvort þetta mun enda svona for good eða ekki. Ég veðja samt á ekki.

Svo endar Prison Break á mánudaginn eftir tvær vikur (í USA, frekar hægt að segja að nóttu 16. maí hér) og ef það verða ekki spennuþrungnar 40 mínútur..ég segi bara að ég er fegin að það er í höfn samningur um 2. seríu. Og ég er ekki á því að þeir "missi flugið" eins og t.d. Lost hefur gert.

2 down, 4 to go..blogga öruglega bráðum aftur
Og það ætti að banna svona gott veður þegar maður er í próflestri, verð að taka undir með honum Boða með það.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 23:32:55 / Maria

Það er byrjað..

Jæja, þá eru framkvæmdir loksins byrjaðar á húsinu okkar. Allir taka undir með mér: HÚRRA!

B
ílskúrinn er horfin. Hann bara..hvarf á nokkrum tímum, stór hola þar sem hann var. Líka veggurinn við 'aðal' uppkeyrsluna, næst fara tröppurnar þar. Svo er tré komið inn í það sem ég lít á sem miðjan garðinn, sjáum hvort það lifir fluttningin af. Bakgarðurinn líka ein stór hola. Þó að því tímabili sé lokið fyrir nokkuð löngu hugsaði ég allt í einu með mér þegar þetta var allt í gangi að núna er algjörlega aldrei aftur hægt að fara í fótbolta þarna úti í garði. Og þá streymdu minningarnar af stað. Þessi garður var 'the place' í æsku. Fékk líka enga smá skeifu þegar þeir tóku niður eina krónu staurinn. En tréð lifir áfram vonandi, eina úr upprunalega garðinum sem verður áfram að frátöldu grasinu, sem ég er ekki einu sinni viss um að verði áfram.

En allar þessar breytingar þýða svo bara eitt að lokum, loksins verður íbúðin að veruleika! And won't that be fun!

Veikindin eru alveg horfin, bögg samt að komast ekki upp í sumarbústað með bekknum, en ég vil frekar einbeita mér að því að ná upp því sem ég missti af. Ætti ég ekki að vera að því í staðin fyrir að blogga? Ætla að drífa í því á eftir.

Afmælismatur hjá okkur á morgun, pabbi átti afmæli í gær og Baldvin frændi á afmæli á morgun. Hr. USA fari verður bara hérna hjá okkur í anda.

Læt þetta duga í bili
Er að hlusta á: Goodnight and Go - Imogen Heap

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 22:30:38 / Maria

Að mygla niður

Ég hef verið svo sannfærð um að ég myndi hafa SVO gott af því að vera veik segjum einn dag til að geta slappað af og hlaðið batteríin, en kannski er það bara vegna þess að það er svo langt síðan ég var síðast veik. En þetta er sko ekki gaman. Eins og fyrirsögnin segir er ég gersamlega að mygla niður af leiðindum. Og til að bæta við það nenni ég ekki að gera neinn skapaðan hlut til að losna við þessi leiðindi. Og aftast á listanum mínum er heimavinna og annað skólatengt, sem ég verð víst að hugsa um á morgun :cry:

En aðalmálið er að hressast sem fyrst. Familían fékk póstkort frá Baldvin frænda í USA, sakna hans mjög mikið, sem og Mumma og Ásu í Köben. En ég mun vonandi sjá þau bráðum, ætlum að reyna að fara út til þeirra þegar prófin verða búin í maí. Er ég búin að nefna það hvað það er virkilega stutt í þau? Frábær tímasetning til að veikjast alveg hreint..:$

Ætla að kveðja áður en ég fer að bulla einhverja vitleysu.
- Maria sjúklingur

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 18:10:48 / Maria

Hausverkur frá helvíti mættur

Einmitt, í allan dag er ég búin að þjást af þessum virkilega slæma höfuðverk, nálgast óðfluga sársaukastig "hins stóra" hérna um árið. Skil ekki alveg afhverju ég lendi í þessu akkúrat núna, var mjög duglega og fór "snemma" að sofa á minn mælikvarða um helgar í gær, en svaf svo greinilega ekki vel. Ef ég verð svona slæm á morgun þegar ég vakna fer ég sko ekki í skólann, það er enokkuð víst. Sem er alls ekki nógu gott, að veikjast á aðal annatímanum, kemur bara fyrir mig gott fólk.

Annars er ég búin að gefast upp á því að læra að setja inn myndir með færslunum, geri etv eina tilraun en. Læt þetta duga, ætla að leggjast niður í smá stund, reyna að hressa mig svo ég geti lært eitthvað aðeins meira á eftir. Minntist ég á það að það er brjálað mikið að gera einmitt núna?
- Maria

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 17:47:20 / Maria

Þessir titlar skipta ekki máli so..

Ég er alveg hræðilega í því að nenna að blogga nema það sé eitthvað rosalegt í gangi, og þá hef ég sjaldnast tíma til þess..

Nemó komið og farið, þvílík snilldarsýning er þetta, allir, og ég meina ALLIR að fara á hana. Bekkurinn skemmti sér mjög vel að vanda, takk fyrir æðislega skemmtilegan dag.

Ég hef ákveðið að gefast upp á því að hafa skoðannakönnun á síðunni, mér dettur aldrei neitt skemmtilegt í hug. (Eins og sjá má af þeirri sem er núna) En ef einhver hefur hugmyndir, endilega..share.

Ég horfði á tvær bíómyndir um helgina, fór á Fun With Dick and Jane, hún er ágæt, ég fíla Jim Carrey mjög mikið, þannig að ég gat þó hlegið. Svo horfðum við Loftur á Anchorman með pizzunni okkar í gær, önnur fín mynd þar á ferð. Næstar á dagskrá hjá mér eru líklega Brokeback Mountain og Walk The Line.
Læt þetta duga í bili.

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 23:49:24 / Maria

Á Tjá og Tundri

Dagurinn í dag..vaknaði mjög þreytt eftir að hafa vakað til um 2, var að horfa á undanúrslitin í NFL, ekki nógu spennandi, hefði viljað sjá jafnari leiki, en what can you do? Skólinn var svona bla, kannski af því að ég var bæði þreytt og enþá "veik", hnerraði eins og ég veit ekki hvað í allan dag. Vonandi er ég þó að hrista þetta af mér. The Schneedles komu á Marmarann í hádeginu, það var skemmtilegt. Aðal "hasarinn" var samt eftir skóla, fór sumsé í mátun á peysufötum fyrir hvað annað en Peysufatadaginn, og mitt er frátekið, þannig að nú get ég farið að auglýsa ef einhver veit ekkert hvert á að snúa sér (;))

Þaðan fór ég heim (þetta tók um klukkutíma, einhvernvegin styttra en ég bjóst við), og fékk mér Quiznos, sem ég þurfti að borða allt of hratt, því að svo var skundað beint upp í Útvarpshús þar sem 2. umferð Gettu Betur fór fram. Vann Verzló sannfærandi sigur á FSU 22 - 17 ef mig misminnir ekki. Frábært það. Meira hef ég ekki að segja í bili.

P.S. Titill færslunnar smá 'shout-out' til Nemósýningar þessa árs.

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 19:00:48 / Maria

All svakalega vakning

Ég finn mig knúna til að blogga um atburði dagsins í skólanum, nefnilega þessa allsvakalegu vakningu sem átti sér stað. En fyrst vil ég benda öllum á að lesa www.blog.central.is/4a (I know you want to)
En að umræddri vakningu. Ég er ekki með það á hreinu í hvaða frímínútum þetta atvik átti sér stað, en það skiptir ekki öllu máli. Vesalings Perla var mjög þreytt, og hafði fest svefn fram á borðið sitt. Stefanía bendir á hana, og vill að Siggi eða Benni taki mynd af henni í síman sinn, og setji hana svo á bekkjarsíðuna okkar sem er nefnd að ofan. En nei, Boði hefur aðrar hugmyndir. Á meðan Siggi tekur upp, öskrar hann á Perlu greyið alveg rétt við hana, og viðbrögðin, ja, sjón er sögu ríkari.

http://www.zippyvideos.com/9947976533289516/video-0018/

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti